Alþjóðlegur dagur landvarða
- Hefst:
- 31.07.2026 13:00
- Lýkur:
- 31.07.2026 15:00
Alþjóðadagur landvarða: Á föstudag ætlum við að halda uppá Alþjóðadag Landvarða hér í þjóðgarðsmiðstöðinni með fjölbreyttri dagsskrá milli 13-15:
Landvarðaleikar á grasbala fyrir utan þjóðgarðsmiðstöðina, fyrir alla fjölskylduna.
Stefnumót við geimfara (frá kl. 13 – 14); Geimfararnir Ron Garan og Sian Proctor segja frá reynslu sinni , Alysha heldur fyrirlestur um sólmyrkva á jörðinni og aðrar plánetur og Daniel Leeb frá Geimvísindastofnun Íslands stjórnar svo pallborði. Einstakt tækifæri til að spyrja sérfræðinga um himingeiminn.
Vinnusmiðjur um undirbúning fyrir almyrkva á sólu kl. 14 – 15.
Öll hjartanlega velkomin, holl og góð hressing í boði fyrir gesti.