Gestastofa á Malarrifi

Opnunartími: Alla daga kl. 10:30 - 16:30 - Sími: 661-9788

snaefellsjokull@snaefellsjokull.is

Gestastofa á Malarrif

Þjóðgarðsmiðstöðin á Hellissandi er hönnuð í samræmi við samkeppnistillögu Arkís arkitekta ehf. Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) stjórnuðu byggingaframkvæmd og Húsheild verktakar sáu um verklega framkæmd.

Heildarstærð 710fm

Rými til samfélagslegra nota 600fm

Heildarkostnaður framkvæmda 640 milljónir

Framkvæmdir hófust árið 2020 og lauk árið 2022.

Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi var formlega opnuð 24.mars 2023.

Malarrif

Gestastofan stendur við enda Purkhólahrauns á syðri hlið þjóðgarðs er gamall sveitabær að nafni Malarrif. Var stundaður þar hefðbundinn búskapur og frá 1917 var vitavörslu einnig sinnt af ábúanda þar.

Í þurrkatíð þegar vatnslaust var á Malarrifi þurfti að sækja vatn fyrir kýrnar og var þá farið og vatni ausið upp úr efsta hluta Vatnshellis. Búið var á Malarrifi fram til 1997 og lagðist þá af föst búseta innan þess svæðis sem síðar varð þjóðgarður. Vitinn var reistur árið 1917 en byggður að nýju árið 1946.

Salthúsið

Í Salthúsinu er að finna sýningu sem nemendur í Lýsuhólsskóla settu upp árið 2016 og sinna árlega.

Megin áhersla sýningunnar er að endurvinna, endurnýta og nota náttúruleg efni við sýningamuni en á sýningunni má finna hin ýmsu verk eftir nemendur, þar á meðal, teikningar, skúlptúra og steina sem breytt hefur verið í furðuverur.

Gestir geta tekið þátt í sýningunni með því að bæta við hana með því að teikna myndir eða finna fjörugrjót og koma fyrir.

Leit

Sláðu inn leitarorð.