Leið 19
Klofningsrétt - Hólahólar
Tími: 2 klst
Hækkun: 1
Lengd: 4 km
Krefjandi
Falleg leið með ströndinni á milli Klofningsréttar í Beruvík og Hólahóla.
Í Beruvík var búið fram á miðja 20.öld og Hólahólar voru stórbýli. Ströndin er fjölbreytt en gengið er um þægilegt, grasi gróið land. Stikla/stökkva þarf yfir lítinn læk. Á leiðinni eru rústir kotbýlis Litlalóns þar sem sagt er að Halldór Laxnes hafi dvalið eitt sinn.