← Áningastaðir

Arnarstapi

Ströndin milli Arnarstapa og Hellna var friðlýst árið 1979 en ströndin skartar fögrum og sérkennilegum bergmyndunum og klettum sem mótast hafa í briminu. Sker og klettar eru iðandi af fuglalífi frá vori og fram á haust.
  • Bílastæði
  • Aðgengi
  • Bekkir
  • Salerni
  • Útsýnisstaður
  • Leiksvæði

Ströndin milli Arnarstapa og Hellna var friðlýst árið 1979 en ströndin skartar fögrum og sérkennilegum bergmyndunum og klettum sem mótast hafa í briminu.

Sker og klettar eru iðandi af fuglalífi frá vori og fram á haust.

Gatklettur á Arnarstapa. Mynd Alberto Zanetti.

Hellnahraun er hrauntunga sem teygir sig niður á milli Arnarstapa og Hellna. Það er um 4000 ára og rann úr gíg nærri Jökulhálsi sem nú er hulinn jökli. Um 2 km gönguleið liggur um hraunið milli Arnarstapa og Hellna.

Arnarstapi eða Stapi eins og byggðin var gjarnan kölluð var kaupstaður og sjávarpláss. Lendingin á Stapa er kölluð Stöð og var sú besta á utanverðu nesinu.

Arnarstapa er getið í Bárðasögu Snæfellsáss og þar er steinlistaverk af Bárði eftir Ragnar Kjartansson myndhöggvara sem setur mikinn svip á svæðið.

Steinlistaverk af Bárði Snæfellsás eftir Ragnar Kjartansson myndhöggvara
Steinlistaverk af Bárði Snæfellsás eftir Ragnar Kjartansson myndhöggvara.

Tengdar gönguleiðir

Leit

Sláðu inn leitarorð.